10.10.1978
Sameinað þing: 1. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (16)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. kjörbréfanefndar (Finnur Torfi Stefánsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar kjörbréf Halldórs Blöndals skrifstofumanns sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi eystra og kjörbréf Ágústs Einarssonar útgerðarmanns sem 1. varauppbótarmanns Alþfl. N. leggur til að þessi kjörbréf verði tekin gild og samþykkt.