21.12.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1954 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

54. mál, fjárlög 1979

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. um veitingu heiðurslauna til listamanna. Að venju flytja þessar till. allir nm. beggja menntmn. Alþ. Nm. leggja til að þeir sömu listamenn og hljóta heiðurslaun í ár hljóti þau einnig á næsta ári. Við mælum sem sagt með óbreyttri skipan mála.