22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (1688)

54. mál, fjárlög 1979

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Þessi till. er efnislega sama till. og við hv. þm. Karl Steinar Guðnason höfum flutt. Ég vil ekki lengja þessa umr. hér, en aðeins segja það, að það hefur áður verið gerð grein fyrir því, af hverju þessi till. er flutt, og um það fóru fram ítarlegar umr. hér í þingsölum í nóvembermánuði. Ég endurtek, að ég vil ekki lengja þessar umr., en með tilvísun til þess, sem þá kom fram, bæði hjá hæstv. forsrh. og eins hjá þeim sem andmæltu rökum hans þá, segi ég já.