22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (1690)

54. mál, fjárlög 1979

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil gera þá grein fyrir atkv. mínu, að fráfarandi ríkisstj. taldi ekki ástæðu til þess, að sérstakur blaðafulltrúi væri starfandi í forsrn. Ég er enn þeirrar skoðunar, að upplýsingastarfsemi ríkisstj. sé ekki best innt þannig af hendi að sérstakur blaðafulltrúi sé starfandi í forsrn. Ég vísa á bug ummælum hæstv. forsrh. um dónaskap, þótt ljóðræn væru þau ummæli, og tel þau í fyllsta máta ósmekkleg og segi já.