22.12.1978
Efri deild: 50. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (1722)

Þingfrestun

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd hv. þdm. þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans í garð okkar þm. og fjölskyldna okkar og óska honum sjálfum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og nýárs, sömuleiðis öllum hv. dm. með þakklæti fyrir samstarfið það sem af er. Forseta sjálfum vil ég þakka sanngjarna og framúrskarandi drengilega fundastjórn, svo sem honum var til trúað öðrum mönnum fremur hér í d. þegar á reyndi. Ég vil svo biðja hv. dm. að rísa á fætur til þess að taka undir þakklæti mitt og óskir forseta til handa. — (Deildarmenn risu úr sætum.]