22.12.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (1734)
Þingfrestun
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Í nafni alþm. vil ég þakka hæstv. forseta sameinaðs Alþingis sanngirni og réttsýni í þingstjórn og óska honum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Starfsmönnum Alþingis þakka ég ágæt störf, sem oft eru unnin við mikið álag og eril, og óska þeim öllum gleðilegra jóla og nýárs. Ég bið þingheim að taka undir þessi orð með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]