26.10.1978
Sameinað þing: 9. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (177)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Gils Guðmundsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
Reykjavík, 24. okt. 1978.
Sverrir Hermannsson, 5. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Austfjarðakjördæmi, Egill Jónsson ráðunautur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Nú stendur að vísu þannig á, að sjálft kjörbréf varaþm. hefur ekki borist. Hins vegar hafa borist símskeyti: Í fyrsta lagi símskeyti frá Seyðisfirði á þessa leið:
„Vegna óviðráðanlegra orsaka get ég undirritaður ekki tekið sæti Sverris Hermannssonar á Alþingi í fjarveru hans.
Pétur Blöndal.“
Og í öðru lagi hefur borist símskeyti á þessa leið:
„Seyðisfirði, 25. okt. 1978.
Alþingi, Reykjavík.
Hef póstlagt kjörbréf fyrir Egil Jónsson, 2. varaþm. Sjálfstfl.
Erlendur Björnsson.“
Símskeyti þetta er frá formanni yfirkjörstjórnar í Austurlandskjördæmi, og skrifstofustjóri Alþingis hefur tjáð mér að fordæmi séu fyrir því, að slíkt símskeyti hafi verið tekið gilt. Ég óska þess, að kjörbréfanefnd taki þessi gögn til athugunar, og gef 7 mínútna fundahlé meðan hún athugar þau.