30.01.1979
Sameinað þing: 44. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2190 í B-deild Alþingistíðinda. (1776)

Umræður utan dagskrár

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Ég vil aðeins ítreka það sem ég sagði og undirstrika, að ég hef sjálfur ákveðnar tillögur fram að færa í þessu máli og mun leggja þær fram, ef sáttatillagan nær ekki fram að ganga. En það hefur ekki gefist tóm til þess að ræða þær í ríkisstj. enn þá, þannig að ekki er um að ræða ákvörðun hennar, a.m.k. ekki að svo komnu máli.