30.01.1979
Sameinað þing: 45. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)
Umræður utan dagskrár
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt nú með því að þakka hæstv. forseta fyrir að taka tíma í að ræða þetta mál út, þannig að engir endar verði lausir fyrir óvandaða skrumara, lýðskrumara að gaspra um utan veggja Alþingis.
Ég vil þá fyrst furða mig á framlagi hæstv. utanrrh. við þessar umr. Ég sé ekki að hann hafi sagt nokkuð skapaðan hlut sem skiptir máli, annað en það, að þeir þm. Alþfl., sem hér hafa tekið til máls, séu of ungir til að tekið sé mark á þeim. En úr því að þeir eru komnir á þann aldur að þeir geti tekið að sér að ala upp annarra manna börn, t.d. sem kennarar eða löggjafarstörf á hv. Alþingi Íslendinga, þá held ég að þeir séu ekki of ungir til þess að vera ábyrgir orða sinna. Ég vil segja að þeir séu komnir til ára, en máltækið að komast til vits og ára nái ekki lengra í þeirri átt, ekki komnir til vits þótt þeir séu komnir til ára.
Ég hef ekki heldur orðið var við að það sé rétt sem hæstv. utanrrh. sagði, að þó að menn séu orðnir eitthvað eldri en þessir hv. þm. Alþfl. eru hafi þeir verið neitt sérstaklega hræddir við að tjá sig úr þessum ræðustól, þannig að það tilheyrir ekki þessum ungu eða ég vil segja yngstu þm. að geta sagt hug sinn úr þessum virðulega ræðustól. Þvílíkur kattarþvottur formanns Alþfl. á ungum sínum hefur sjaldan komið betur fram en með tali hans hér áðan.
Hv. þm. Vilmundur Gylfason las hér upp úr skattalögunum, aðég held, 7. gr., hvernig ætti að standa að framtali. En hann svaraði ekki þeirri spurningu, hvort hann vissi til þess, að einhverjir hér inni og þá hverjir hefðu ekki farið að þeim skattalögum sem þeir eiga að fara eftir.
Ég bað hv. þm. um að nefna mér dæmi, gefa okkur upplýsingar um það, að hvaða leyti Alþ. eða alþm. hafi ekki farið að lögum — skattalögum. Hann gerði það ekki. Hann endurtók að Alþ. eigi að fara í einu og öllu eftir reglum skattalaganna, en tók ekki fram, eins og ég bað um, að hvaða leyti Alþ. hafi ekki farið eftir skattalögum. Ég bað hann um að nefna dæmi þessum fullyrðingum sínum til stuðnings. Hann gerði það ekki, kom ekki með eitt einasta dæmi um skattsvik Alþ. eða skattsvik okkar hinna alþm. Ég vil því segja, að ummæli hv. þm. og hreinsunardeildar þm. Alþfl. séu ómerk og geti alls ekki flokkast undir æsku þeirra. Þetta eru ábyrgir aðilar í þjóðfélaginu, kjörnir af þjóðinni á Alþingi Íslendinga, og þá þýðir ekki að fela sig á bak við það sem kalla má æskubrek annars staðar en í sölum Alþingis. Ég lít því á málflutning þeirra hér í dag sem frumhlaup og ekki það fyrsta frá því að þeir tóku sæti á hv. Alþingi. Og ég ætla að biðja hv. þm. Alþfl. að fara að dæmi hv. þm. Vilmundar Gylfasonar og hreinsa til heima hjá sér, eins og hann tók fram að góður gestgjafi gerði yfirleitt. Hann bauð í þessar umr., hann er gestgjafinn. Hreinsið til heima hjá ykkur sem fyrst.