01.02.1979
Sameinað þing: 46. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2282 í B-deild Alþingistíðinda. (1845)

165. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga

Forseti (Friðjón Þórðarson):

Ég get út af fyrir sig orðið við tilmælum hv. þm., en vil þó aðeins taka fram, að þó að honum finnist að sér hafi verið sýnd óvirðing úr forsetastóli hér í dag, þá tók ég hann fram yfir tvo aðra sem áður voru komnir á mælendaskrá. En við þessum tilmælum verður orðið. Umr. um þetta mál er frestað og málið tekið út af dagskrá.