12.02.1979
Sameinað þing: 50. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2492 í B-deild Alþingistíðinda. (1948)

Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti

Frsm. (Finnur Torfi Stefánsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar kjörbréf fyrir Eirík Sigurðsson, Vopnafirði, sem er 2. varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi. Kjörbréfanefnd fann ekkert athugavert við þetta kjörbréf og mælir með því að það verði tekið gilt og samþykkt.