13.02.1979
Sameinað þing: 51. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2536 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)
122. mál, snjómokstursreglur
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Enda þótt ég vilji taka undir ýmislegt af því sem hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði um nauðsyn á snjóruðningum, þá hlýt ég nú að gera þá aths., að miklu meiri má snjókoma þessa vetrar hafa verið en ég gerði mér grein fyrir ef hæstv. núv. samgrh. á að hafa tekist á þessum fáu mánuðum að fremja meira óréttlæti í snjóruðningsmálum heldur en hæstv. samgrh. Halldóri E. Sigurðssyni tókst á fjórum árum.
Sannleikurinn er náttúrlega sá, að þau mál, sem að snjóruðningi lúta, heyra til yfirstjórnar vegamála fyrst og fremst, þó það sé rétt sem hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði, að hið æðsta vald er hjá ráðh. Það er rétt.
Ég er ekki algerlega sammála hv. þm. Jónasi Árnasyni um það, að þessi mál eigi ekki að koma til kasta þm. Ég hef orðið þess var, að það er mjög mikil þörf fyrir að þm. norðan úr landi fylgist talsvert með þessum málum.
Ég geri aftur á móti ekki kröfu til þess, að sett verði upp töluleg dæmi um hvernig hlutföll eigi að vera í snjóruðningi. Þar kemur til að þörfin fyrir snjóruðning er í fyrsta lagi talsvert undir veðri komin, undir snjókomu, og síðan kemur til aðkallandi þörf. Ég vildi gjarnan sjá meira fé ætlað til snjóruðnings á þessum slóðum þarna fyrir norðan, þannig að fremur sé hægt að ryðja eftir þörfum á þessum svæðum.
Snjóalög eru ákaflega misjöfn. Við lifum núna þann vetur þar sem snjór hefur verið öllu meiri um tíma á Suðurlandi en fyrir norðan. Og svo er þetta sem haft var eftir tveimur ungum Alþfl.-mönnum hér á alþingishúströppunum: Það er undarlegt þetta með snjóinn, hann kemur, og svo má ekki hlýna í veðri, þá er hann farinn.
Þörfin fyrir snjóruðning er síður en svo árviss á hinum ýmsu stöðum, a.m.k. á því horni Norðausturlands sem nafni minn Valgeirsson gerði ágæta grein fyrir áðan. Við vitum ósköp vel hve þörfin er misjöfn, og það kemur ekki bara til úrkoman eða snjóþyngslin, heldur hin aðkallandi þörf fyrir færa vegi á þessu svæði. Ég vildi því gjarnan sjá að meira fé væri ætlað til snjóruðninga, þannig að það væri tiltækt þegar á því þyrfti að halda.