20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2651 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)
Umræður utan dagskrár
Finnur Torfi Stefánsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að þakka fyrir svör hæstv. iðnrh. og hæstv. viðskrh. Ég vil sérstaklega þakka undirtektir viðskrh. undir könnun á útflutningsverslun sem ég held eins og hann að sé mjög brýn. Ég vil þó gera þá aths. við svar iðnrh., að hann taldi að fjárskortur hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða kynni að vera ein meginástæðan fyrir þeim mistökum sem urðu þarna. Það kann vel að vera rétt. Og ég fagna því að iðnrh. ætlar að kippa því máli í liðinn. En mér virðist að tveir aðrir aðilar hljóti að bera einhverja ábyrgð á þessu máli líka, þ.e.a.s. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, sem mun hafa þá skyldu lögum samkv. að rannsaka ágæti þessarar framleiðsluvöru, og enn fremur hlýtur sá söluaðili, Sölustofnun lagmetis, sem hefur það verkefni að selja vöruna og þar með þá auðvitað skyldu að haga sér þannig í sölumálum að hún fyrirgeri ekki mörkuðum okkar með mistökum, — ég tel að báðir þessir aðilar hljóti að bera þarna nokkra ábyrgð líka. Það er kannske fjárskortur hjá þeim líka. En ég vildi gjarnan vita nánar ef einhver hér á þingi gæti uppýst um það, hvaða ástæður eru til þess að þessir tveir síðari aðilar brugðust.