27.02.1979
Sameinað þing: 58. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Gils Guðmundsson):

53 hv. alþm. hafa tekið þátt í atkvgr. og þar sem ekki hafa nema 35 sagt já og viljað leyfa afbrigðin hefur þessi atkvgr. farið á þá leið að afbrigði hafa ekki verið leyfð, þar sem skýrt er að til þeirra þarf samþykki 3/4 þeirra sem á fundi eru. Afbrigði hafa þar með ekki verið leyfð. — Þessi till. til þál. verður þá að sjálfsögðu á dagskrá næsta fundar Sþ.