01.03.1979
Neðri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2911 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)
202. mál, tímabundið olíugjald til fiskiskipa
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Þegar það lá fyrir fyrir nokkrum vikum að verulegar hækkanir yrðu á olíuverði, þá tók ríkisstj. ákvörðun um að samhliða þeirri hækkun, sem yrði að koma inn nú í lok febrúarmánaðar, yrðu gerðar sérstakar pólitískar ráðstafanir til að tryggja að útgerðin í landinu fengi nokkurn veginn bættan þann kostnaðarauka sem af olíuhækkuninni hlytist. Ríkisstj. fjallaði um þessi mál á nokkrum fundum og m. a. ég og hæstv. félmrh. ræddum um þessi mál allítarlega og höfðum um þau samráð við sjómannasamtökin. Þá lá málið þannig fyrir, að bæði þau frv., sem nú liggja fyrir hv. Alþ., voru nokkurn veginn tilbúin. Þó var í frv.-uppköstunum ákvæði um það, að þegar skip landaði í erlendri höfn ætti að draga frá 1.3% olíugjald, og í hinu frv. var ákvæði um það, að hlutfall til áhafnadeildar skyldi breytast þannig að tekjur hennar skertust nokkuð frá því sem ella hefði verið.
Á þessum samráðsfundi kom það fram af hálfu fulltrúa sjómannasamtakanna, að þeir töldu óráðlegt að skerða tekjur áhafnadeildarinnar með þeim hætti sem uppkastið gerði ráð fyrir, og þeir bentu einnig á að þeir væru andvígir 2. gr. frv. um tímabundið olíugjald. Á þessum fundi með fulltrúum Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands var það í rauninni strax samkomulagsatriði að breytt yrði prósentunni til áhafnadeildarinnar, þannig að hún héldi sínum hlut frá því sem áður hefði orðið að óbreyttu útflutningsgjaldi. En til samkomulags við sjómannasamtökin var prósentan á olíugjaldi færð úr 1.3 niður í 1% þegar landað er erlendis. Í grg. frv. þessa segir að fulltrúar sjómanna andmæli hins vegar ákvæði 2. gr. um 1% frádrátt frá söluverðmæti við landanir erlendis. Á fundinum með fulltrúum sjómannasamtakanna var greinilega um að ræða mismunandi áherslu af hálfu forráðamanna Farmanna- og fiskimannasambandsins annars vegar og Sjómannasambandsins hins vegar. Þessi varð því niðurstaðan í ríkisstj., vegna þess að þarna komu ekki fram kröftug mótmæli frá sjómannasamtökum, — ekkert sjómannafélag í landinu hefur sent frá sér mótmælaályktun út af þessu máli. — Af þeirri ástæðu var kleift fyrir okkur hæstv. iðnrh. að fallast á að flytja frv. og standa að því með þeim hætti sem það liggur nú fyrir. Þetta er nauðsynlegt að komi fram vegna þeirra fsp. og umr. sem hér hafa átt sér stað síðustu mínúturnar.
Meginefni frv. um tímabundið olíugjald til fiskiskipa er auðvitað í 1. gr. Efni 2. gr. er samkomulagsatriði milli okkar sem sitjum í ríkisstj. Efni 2. gr. hefur ekki verið mótmælt kröftuglega af forráðamönnum sjómannasamtakanna, þó að viss gagnrýni hafi af fullkomlega eðlilegum ástæðum komið fram af þeirra hálfu. Þetta taldi ég nauðsynlegt, herra forseti, að kæmi fram.