14.03.1979
Neðri deild: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3241 í B-deild Alþingistíðinda. (2549)
90. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Félmn. hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um breyt. á 1. nr. 30/1970, um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Umsagnaraðilar, sem n. sendi málið til umsagnar, lýstu sig fylgjandi frv., en þó kom fram í umsögn félmrn. og Húsnæðismálastofnunarinnar, að nauðsynlegt sé að Byggingarsjóði ríkisins verði tryggður öruggur tekjustofn til þess að standa undir þeim lánveitingum sem í frv. eru ætlaðar til dagvistarheimila. Forráðamenn Byggingarsjóðs höfðu reiknað með að hann fengi að selja lífeyrissjóðunum mun meiri skuldabréf en raun hefur orðið á, þannig að hann hefur nú mun minna fé til ráðstöfunar en ráð var fyrir gert. Engu að síður gæti heimildarákvæði það, sem ráð er fyrir gert í frv., ef samþykkt yrði, hugsanlega örvað slík skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna af Byggingarsjóði, þar sem bygging dagvistarheimila fyrir yngri sem eldri borgara er í þágu þeirra eigin félagsmanna og því ekki óeðlilegt að þeir væru fúsari til skuldabréfakaupa af Byggingarsjóði en öðrum aðilum. Þar sem sýnt er að litlar líkur eru á að hægt verði að ráðast í byggingu dagvistarheimila að einhverju marki á næstunni mundi slíkt heimildarákvæði hjá Húsnæðismálastofnuninni til lánveitinga til byggingar dagvistarheimila stuðla að örari byggingu þeirra en ella væri. Slíkt heimildarákvæði byggðist vitaskuld á hvað fjárhagur Byggingarsjóðs ríkisins leyfði hverju sinni, þ. e. skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna sköpuðu grundvöll fyrir.
Þótt sýnt þyki, að fjárhagur Byggingarsjóðs leyfði ekki slíkar framkvæmdir strax þótt þetta heimildarákvæði fengist samþykkt, þá þykir n. rétt að slíkt ákvæði verði fyrir hendi þegar fjárhagur Byggingarsjóðs leyfir lánveitingar til dagvistarheimila sem frv. gerir ráð fyrir. N. mælir því einróma með samþykkt frv. og vonar að frv. fái greiða afgreiðslu hér á hv. Alþingi.