20.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3435 í B-deild Alþingistíðinda. (2679)

113. mál, umbætur í málefnum barna

Páll Pétursson:

Herra forseti. Það er misskilningur, að ég hafi tekið jafnvel undir alla þætti þessarar till., en ég er alltaf reiðubúinn að styðja mál sem Alþfl.-menn flytja, bara ef mér þykja þau skynsamleg. Í sumum þeirra, sem ég hef ekki verið tilbúinn að styðja, hafa verið settar fram, svo að ég noti orðalag hv. síðasta ræðumanns, ítrustu hugmyndir, sem engum dettur í hug að nái fram að ganga.