22.03.1979
Sameinað þing: 71. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3506 í B-deild Alþingistíðinda. (2740)

32. mál, lífríki Breiðafjarðar

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hv. allshn. fyrir það sem hún hefur gert fyrir þetta mál, svo og frsm. hennar, hv. 4. þm. Vesturl. Mér er kunnugt um það, að till. þessi hefur vakið töluvert mikla athygli og hafa margir sent Alþingi áskoranir og tilmæli um að hún yrði samþykkt. Öllum þessum aðilum kann ég hinar bestu þakkir fyrir veittan stuðning við þetta mál, og ég vona og veit að hann verður málefninu til mikillar styrktar í framtíðinni.