26.03.1979
Neðri deild: 67. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3581 í B-deild Alþingistíðinda. (2791)
212. mál, djúphiti í jörð og virkjunarréttur fallvatna
Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. og stefndi henni til forsrh., því að ég vísa til greinar í samstarfsyfirlýsingu núverandi stjórnarflokka, þar sem stendur á bls. 9 að eitt af því, sem stjórnarflokkarnir gerðu samþykkt um, væri að djúphiti í jörð og virkjunarréttur fallvatna yrði þjóðareign. Undanfarin ár höfum við þm. í Alþfl. flutt ýmist þáltill. eða frv. til l. varðandi þessi gögn og gæði landsins og raunar fleiri, og þar sem ég hafði ekkert heyrt um þessi mál í vetur þótti mér hlýða að gera þessa fsp. til þess að ýta á eftir því að eitthvað gerðist í málinu.
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta því ég veit að tími þingsins er naumur og tel mig hafa skýrt hvers vegna ég ber þessa fsp. fram og vænti upplýsinga.