02.04.1979
Neðri deild: 69. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3761 í B-deild Alþingistíðinda. (2937)

22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég tel málefnið gott og sjálfsagt að veita fjármagn í slíkan sjóð. Ég tel hins vegar eðlilegt að það komi úr sameiginlegum sjóði okkar landsmanna og verði veitt á fjárl. Auk þess hafa stjórnarflokkarnir sameinast um að endurskoða markaða tekjustofna. Því greiði ég atkv. gegn liðum a og b og segi nei.