23.04.1979
Neðri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4105 í B-deild Alþingistíðinda. (3207)

154. mál, skipti á dánarbúum og félagsbúum

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Hér er enn um frv. að ræða, sem er hluti af þeim pakka sem um var samið við launþega um umbætur í félags- og réttindamálum. Frv. þetta er flutt samhliða öðru frv. um breyt. á l. um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot. Samkv. þeim lögum tekur ríkisábyrgð aðeins til þeirra vinnulauna og annarra skuldbindinga atvinnurekenda sem forgangsréttur fylgir samkv. lögum um skipti á dánarbúum, félagsbúum o. fl. En þau lög hafa að geyma reglur um það, í hvaða röð kröfur skuli greiddar við gjaldþrotaskipti.

Það frv., sem ég nefndi, mun reyndar vera orðið að lögum. Í frv. því, sem hér er til umr., er gert ráð fyrir þeim breytingum á núgildandi lögum um skipti á dánarbúum og félagsbúum o. fl., að forgangsréttur launakröfu svo og annarra þeirra krafna, sem ríkisábyrgð tekur til við gjaldþrot, er lengdur úr 6 mánuðum í 18 mánuði. Slík breyting er nauðsynleg vegna þess að oft líður langur tími frá því að fyrirtæki komast í greiðsluþrot og þangað til gjaldþrotaúrskurður er kveðinn upp. Þessi dráttur hefur valdið því, að kröfur um laun eða aðrar lögmæltar greiðslur hjá þrotabúi hafa glatast, ýmist algerlega eða þá að hluta til. Réttur launþega á hendur ríkissjóði hefur þá jafnframt fallið niður þar sem ríkisábyrgðin takmarkast við þær kröfur sem forgangsréttur fylgir.

Í þessu sambandi er rétt að vekja athygli á því, að um s. l. áramót tóku gildi ný gjaldþrotalög. Með gildistöku og framkvæmd þeirra laga er stefnt að því að hraða gjaldþrotameðferð, en það ætti að koma til góða launþegum sem öðrum þeim sem kröfur eiga á hendur þrotabúi.

Loks er að finna í frv. það nýmæli, að örorku- og dánarbótum til launþega, maka þeirra og barna er veittur tilsvarandi forgangsréttur og launakröfum. Með frv. til breyt. á lögum um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot er lagt til að ríkisábyrgð nái einnig til þessara bóta. Dæmi munu til þess, að makar og börn hafi glatað lögmæltum dánarbótum við gjaldþrot atvinnurekenda þótt launakröfur fengjust greiddar, og hlýtur slíkt að teljast óviðunandi.

Að svo mæltu legg ég til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. þessu vísað til 2. umr. og hv. allshn.