24.04.1979
Sameinað þing: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4162 í B-deild Alþingistíðinda. (3258)
255. mál, uppbygging símakerfisins
Flm. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm., sem hér hafa talað, góðar undirtektir undir þessa þáltill. Ég vil einnig þakka þá yfirlýsingu sem var gefin hér áðan um að sérstakt átak yrði gert á árinu 1980 til uppbyggingar sjálfvirkra stöðva úti um land, og vona að reynist unnt að standa við það.
Ég kvaddi mér hljóðs út af orðum hv. 1. þm. Reykv. áðan. Hann óttast, eins og mig grunaði reyndar, að þetta feli í sér miklar álögur á íbúa Reykjavíkur. Ég er ekki sannfærður um að svo þurfi að vera. Ég vil undirstrika að allar aðgerðir í þessum málum dreifast jafnt á alla landsmenn. Verðjöfnun á langlínusamtölum hlýtur að koma þeim, sem þurfa að hringja héðan frá Reykjavík út á land, jafnt til góða og þeim sem þurfa að hringja utan af landi til Reykjavíkur. Það er ekki endilega þar með sagt að eins sé og með vegina. Það er alltaf talað um að þeir séu byggðir fyrir þá sem eru við fámennari endann. Eins er með tímamælingu innan svæða. Það hlýtur að koma að því, að tekið verði upp að tímamæla innan svæða á öllu landinu.
Ég vil taka það fram, að ég tel að nokkur misnotkun sé á símanum innan svæða. Menn nota símann hömlulaust þar sem þeir geta talað á einu skrefi ótímamælt, tala jafnvel svo klukkutímum skiptir innan svæða. Mér finnst varla ástæða til að slíkt sé heimilt án þess að gjaldtaka komi fyrir.
Það hafa verið það góðar undirtektir undir þessa till., að ég ætla ekkert að vera að orðlengja frekar. En út af ummælum hv. 1. þm. Reykv. um till. hans sem liggja fyrir Alþ., vil ég taka fram, að ég tel að það sé sjálfsagt að skoða þessi mál með opnum hug. Ég skal ekkert fullyrða um það á þessu stigi, að þessi mál séu betur leyst þannig, en sú er skoðun mín að sjálfsagt sé að athuga þetta. En ég verð reyndar farinn frá þessari stofnun þegar þær koma til umr. í næstu viku.
Ég vil að lokum þakka ágætar undirtektir við þetta mál.