27.04.1979
Efri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4244 í B-deild Alþingistíðinda. (3342)

270. mál, aðstoð við þroskahefta

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka þeim hv. þm., sem hafa talað um þetta mál, fyrir lofsamleg orð um frv. og fyrirheit um stuðning við það. Satt að segja er ég mun bjartsýnni en ég var, og dæmi þá af undirtektunum á að frv. nái afgreiðslu á þessu þingi, þótt tíminn sé vissulega orðinn naumur.