27.04.1979
Efri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4253 í B-deild Alþingistíðinda. (3360)

19. mál, dómvextir og meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Jón Ásbergsson):

Herra forseti. Allshn. þessarar d. hefur athugað frv. það til l. um dómvexti, sem hér liggur fyrir, og leggur til að það verði samþ. með þeirri breyt. sem á því var gerð í allshn. Nd., enda var sú breyt. gerð í fullu samráði við flm. frv. og kveðið nánar á um hvernig dómkröfur skyldu verðtryggðar á verðbólgutímum.