02.05.1979
Neðri deild: 80. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4304 í B-deild Alþingistíðinda. (3430)

259. mál, lausaskuldir bænda

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Hér liggur fyrir til umr. á þskj. 531 stjfrv. sem gerir ráð fyrir þó nokkrum ívilnunum í nýjum lögum handa einni stétt manna. Þar sem þetta er stjfrv. vildi ég gjarnan fá að heyra, annaðhvort frá ráðh. eða þá sérstaklega frá hv. þm. Alþfl., hvort einhugur ríki meðal stjórnarflokkanna um þetta frv.

Með fsp. minni er ég ekki að taka afstöðu gegn efni þessa stjfrv.