03.05.1979
Efri deild: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4326 í B-deild Alþingistíðinda. (3445)
198. mál, fjörutíu stunda vinnuvika
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Meiri hl. félmn. leggur til að frv. þetta verði samþ. Hér er á ferðinni fyrsta skrefið til þess að taka upp raunverulega 40 stunda vinnuviku og liður í þeirri víðtæku baráttu sem óhjákvæmilegt er að heyja á næstu árum gegn þeirri miklu yfirvinnu sem sligar launafólkið í landinu, félagslíf þess og lifnaðarhætti. Eins og um fleiri frv., sem ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþ. leggur til að samþ. verði og hafa verið unnin í samvinnu við samtök launafólks, hefur ekki náðst samstaða um þetta mál í n. og minni hl. hennar, fulltrúar Sjálfstfl., skilar sem og áður séráliti. Það hefur áður í umr. í hv. d. verið fjallað um þennan ágreining. Megineinkenni hans liggja því ljós fyrir og sé ég ekki ástæðu til að rifja þau upp hér nú, þótt vissulega væri tilefni til, en legg eindregið til fyrir hönd meiri hl. n. að frv. verði samþ.