07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Finnur Torfi Stefánsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar tvö kjörbréf: í fyrsta lagi kjörbréf fyrir Stefán Guðmundsson framkvæmdastjóra, Sauðárkróki, sem hlaut kosningu sem 1. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra lögmæltan tíma, og í öðru lagi kjörbréf fyrir Eirík Alexandersson, Grindavík, sem hlaut kosningu sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi lögmæltan tíma.Kjörbréfanefnd hefur rannsakað þessi bréf og ekki fundið við þau neitt athugavert og mætir þess vegna með því, að þau verði tekin gild og samþykkt.