08.05.1979
Sameinað þing: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4437 í B-deild Alþingistíðinda. (3512)

349. mál, símamál í Mosfellssveit

Fyrirspyrjandi (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. upplýsingar hans og vil aðeins undirstrika við þetta tækifæri nauðsyn þess, að fjármagnið verði notað í tilteknu skyni. Ég vænti þess og trúi fastlega að við það verði staðið að verkinu verði lokið á næsta ári því að á því er mikil þörf.