07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (362)
Umræður utan dagskrár
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Tilefni þess, að ég kveð mér hljóðs utan dagskrár, er hinn alvarlegi áburður dagblaðsins Vísis í gær, þar sem fullyrt er í leiðara að formaður Framsfl. í embætti viðskrh. hafi tekið innflutning af frílista til þess að innflutningsdeild Sambands ísl. samvinnufélaga gæti sett upp kexverksmiðju. Þarna er ekki skafið utan af hlutunum, heldur umbúðalaust fullyrt að hæstv. fyrrv. viðskrh., núv. forsrh., hafi misnotað ráðherraembætti sitt til fjárhagslegs ávinnings fyrir Samband ísl. samvinnufélaga. Í leiðara Vísis í gær segir orðrétt, með leyfi forseta:
„SÍShringurinn hefur í skjóli pólitísks valds öðlast óeðlilega drottnunaraðstöðu á öllum sviðum atvinnulífsins. Mönnum er í því sambandi enn í fersku minni, þegar formaður Framsfl. í embætti viðskrh. tók kexinnflutning af frílista til þess að Innflutningsdeild Sambands ísl. samvinnufélaga gæti sett á fót kexverksmiðju.“
Ég leyfi mér að beina þeirri fsp. til hæstv. fjmrh. í fjarveru dómsmrh., hvort hann ætli að beita áhrifum sínum til þess að mál þetta verði rannsakað eða hvort hæstv. ríkisstj. ætli án aðgerða að sitja undir þeim áburði um saknæmt atferli núv. hæstv. forsrh. sem í leiðaranum felst.