09.05.1979
Efri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4515 í B-deild Alþingistíðinda. (3626)

184. mál, tollskrá

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég þarf ekki að flytja langt mál um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 120 31. des. 1976, um tollskrá o. fl., sbr. lög nr. 24 10. maí 1977 og lög nr. 8218. maí 1978, um breyt. á þeim lögum, sem lagt var fram í Nd. sem 184. mál, á þskj. 353. Þetta frv. er ákaflega stutt. Það er í tveimur greinum og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„1. gr.: Í 14. tölul. 3. gr. laganna falli orðin „ráðh. og“ brott.

2. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Eins og kunnugt er hafa um alllangt árabil verið í gildi sérstakar reglur um tollmeðferð bifreiða er ráðh. hafa til afnota. Með lögum nr. 1 frá 1970, um tollskrá o. fl., var veitt heimild til að veita undanþágu frá greiðslu aðflutningsgjalda af bifreiðum ráðh. í samræmi við reglur um bifreiðamál ríkisins.

Reglur þær, er nú gilda um bifreiðamál ríkisins, er að finna í reglugerð nr. 6 frá 1970. Í 10. gr. reglugerðar þessarar eru svofelld ákvæði:

„Hver ráðh. getur fengið til umráða ríkisbifreið, sem ríkissjóður ber allan kostnað af. Bifreiðar þessar skulu sérstaklega auðkenndar, og er óheimil notkun þeirra nema í embættisþágu.

Ráðh., sem óskar ekki að fá til umráða ríkisbifreið, á þess kost að fá keypta bifreið, er hann tekur við embætti, með sömu kjörum og gilt hafa um bifreiðakaup ráðh., er lætur af embætti. Heimilt er að veita ráðh. í eitt skipti lán til slíkra kaupa með sömu kjörum og gilda um ríkisforstjóra, sem haft hafa ríkisbifreið til afnota.“

Ríkisstj. telur óeðlilegt að ráðh. fái bifreiðar, er verða einkaeign þeirra, með öðrum kjörum en almennt gilda í landinu. Er því með frv. þessu lagt til að lagaheimild til veitingar slíkra fríðinda verði felld úr gildi.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta mál. Það hefur verið nokkuð lengi að veltast í þinginu. Ég vil vinsamlegast mælast til þess við hv. n., sem fær frv. til meðferðar, að hún hraði meðferð þess þannig að það verði að lögum fyrir þingslit.

Ég vil svo að lokinni þessari umr. leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.