10.05.1979
Sameinað þing: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4591 í B-deild Alþingistíðinda. (3721)

245. mál, greiðsla orlofsfjár sveitafólks

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Ég kveð mér aðeins hljóðs til þess að lýsa fyllsta stuðningi við þessa till., en beini því til þeirrar n., sem hana fær til athugunar, hvort ekki mætti umorða hana og gera hana ákveðnari þannig að beinlínis verði tekin um það ákvörðun að greiða þessa peninga til bænda beint samhliða því sem þeir fá aðra fjármuni beint.