10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4634 í B-deild Alþingistíðinda. (3780)
238. mál, námsgagnastofnun
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Aðeins örstutt mál um það frv. sem hér er til 1. umr. í seinni deild.
Ég skal viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér þetta frv. sem skyldi, en mig langar til að fara fram á það að í n., þegar þetta mál verður tekið þar til meðferðar, verði kannað rækilega hvort ekki sé ástæða til að leggja niður ákveðinn hluta þeirrar starfsemi sem þarna er um að ræða. Ég hef grun um að viss hluti þeirrar starfsemi, sem þarna er um að ræða, geti svo vel sé farið fram utan þessa kerfis. Þar á ég sérstaklega við bókaútgáfuna og Skólavörubúðina, sem sjálf flytur inn og selur ýmsan varning í beinni samkeppni við venjulegar sölubúðir í landinu. Mér þætti þess vegna vænt um ef hægt væri að leita álits þeirra, sem stunda verslun og bókaútgáfu í landinu, hvort ekki sé hægt að koma~eim hlutum öðruvísi fyrir en hingað til hefur verið gert. g tel hins vegar að sameining þeirra aðila, sem um er að ræða, sé til bóta, en vil aðeins koma þessum sjónarmiðum á framfæri.
Þarna er um að ræða stofnanir sem hafa starfað tugi ára og voru settar á laggirnar á allt öðrum tíma en nú er uppi. Því má gera ráð fyrir að þær breytingar, sem hafa átt sér stað í þjóðfélaginu, hafi áhrif á þetta mál. Nægir að minna á í því sambandi að þegar Ríkisútgáfa námsbóka var stofnuð var auðvitað ætlunin að gefa út ódýrar skólabækur fyrir fólk sem ekki var bjargálna, barnmargar fjölskyldur, og gjald var greitt beint svo sem menn muna. Nú hefur því gjaldi verið eytt, það er aðeins greitt með venjulegum sköttum og útgjöldin fara um ríkissjóð með venjulegum hætti. Ég held, fyrst verið er að breyta þessu, að ástæða sé til að kanna rækilega hvort ekki sé hægt að skera niður hluta af þessari starfsemi. En það þýðir ekki að ég leggist gegn þeirri sameiningu sem þarna á að eiga sér stað, heldur aðeins hvort ekki sé ástæða til að draga saman starfsemina og láta aðra aðila í þjóðfélaginu um hana, þó með yfirstjórn aðila á borð við þann sem frv. fjallar um.