10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4643 í B-deild Alþingistíðinda. (3799)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Kröfluvirkjun er vandræðamál, sem á sér langa og leiðigjarna sögu eins og þingheimi er kunnugt um. Með lánsfjáráætlun núv. hæstv. ríkisstj. átti sér stað stefnumörkun varðandi þessa virkjun. Það er svo nýr flötur á málinu ef einstakir stjórnarþm. gera bandalag við óábyrga stjórnarandstöðu um þetta mál. Ég segi nei.