10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4643 í B-deild Alþingistíðinda. (3806)
190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég kýs að gera grein fyrir atkv. mínu við þessa atkvgr. til að vekja athygli á:
Í fyrsta lagi, að ríkisstj. hefur enga samræmda stefnu við afgreiðslu fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar frekar en í öðrum mikilvægum þáttum efnahagsmála.
Í öðru lagi, að hæstv. iðnrh. hefur ekki sýnt tilburði, sem fram hafi komið á Alþ., til að efna fyrirheit sitt við afgreiðslu hækkunar verðjöfnunargjalds rafmagns og gera jafnhliða því aðrar ráðstafanir til að rétta við fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins. Hins vegar hefur formaður stjórnar RARIKs, hv. 2. þm. Norðurl. v., flm. þessarar till., þá ábyrgðartilfinningu að láta ekki sitja við aðgerðaleysi hæstv. iðnrh.
Í þriðja lagi, að með því að hæstv. iðnrh. þvingaði fram samþykkt hækkunar verðjöfnunargjalds hér á þingi í vetur í stað þess að taka boði um samstöðu um fjáröflun til RARIKs og með því að hæstv. iðnrh. hefur ekki gert till. um endurskipulagningu og fjármögnun félagslegra framkvæmda RARIKs greiði ég ekki atkv. um þessa tillögu.