10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4644 í B-deild Alþingistíðinda. (3807)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Um leið og ég minni á að leiðrétting hefur fengist fram í sambandi við verðmismun á raforku hjá viðskiptavinum Rafmagnsveitna ríkisins og þorra landsmanna sem búa við mun betri kjör, þar sem verðmismunur hefur minnkað úr 88% í rösk 55%, vil ég jafnframt lýsa yfir að þær bætur, sem fást á fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins með væntanlegri samþykkt þessarar till., munu verða notaðar til þess að minnka þennan mismun enn frekar. Ég segi já.