10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4645 í B-deild Alþingistíðinda. (3812)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls lýsti ég afstöðu minni til 3. gr. frv. og lagði áherslu á að hún yrði felld út úr frv. Þessi grein þrengir þá grein sem er nú í lögum frá í nóv. 1977 og varðar lífeyrissjóðina. Ég var mjög andvígur þeirri lagasetningu. Ég er jafnandvígur því máli enn og vegna þess greiði ég ekki atkv.