11.05.1979
Neðri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4684 í B-deild Alþingistíðinda. (3876)

37. mál, meðferð opinberra mála

Frsm. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Á þskj. 648 hefur allshn. Nd. leyft sér að leggja til að frv. til l. flutt af hv. þm. Finni Torfa Stefánssyni verði samþ., þó með þeirra breytingu að 2. gr. frv. hans falli niður. Með frv. svo breyttu mælir öll allshn. Nd., en hana skipa Vilmundur Gylfason, Einar Ágústsson, Gils Guðmundsson, Árni Gunnarsson, Svava Jakobsdóttir, Friðrik Sophusson og Matthías Á. Mathiesen.