14.05.1979
Efri deild: 100. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4726 í B-deild Alþingistíðinda. (3935)
277. mál, verslun ríkisins með áfengi
Frsm. meiri hl. (Jón Helgason):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil aðeins ítreka stuðning minn við þær hugmyndir, sem koma fram í þessari rökstuddu dagskrá um endurskoðun á áfengislöggjöfinni, og vil lýsa yfir, að ég mundi með mikilli ánægju standa að flutningi þáttill. um slíka endurskoðun með hv. flm. þessarar dagskrártillögu. Ég tel að með því getum við náð því sama markmiði.
Hv. 5. þm. Vestf. sagði að ríkissjóður þyrfti að venja sig á þá staðreynd, að tekjur ríkissjóðs minnki af áfengissölu því að það þurfi að draga úr henni. Ég lét það koma hér fram, það var álit meiri hl. fjh.- og viðskn., að það væri æskilegt að úr henni væri dregið, og við teljum að þetta frv. sé ekki fyrst og fremst til þess að örva áfengissölu eða slíkt, heldur þvert á móti. En þó að hagnaður af áfengissölu renni til ríkissjóðs, — allur hagnaðurinn, þá er þrátt fyrir það jákvætt fyrir ríkissjóð að þessar tekjur minnki, því að útgjöld ríkissjóðs vegna áfengisneyslunnar eru áætluð a. m. k. helmingi meiri en þær tekjur sem hann hefur af áfengissölunni, og sums staðar erlendis er þetta talið jafnvel enn þá meira. Hér hefur þetta verið varlega áætlað þannig að það er jákvætt fyrir afkomu ríkissjóðs að tekjurnar minnki, ef það er vegna þess að raunverulega dragi úr áfengisneyslu.