14.05.1979
Neðri deild: 86. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4744 í B-deild Alþingistíðinda. (3968)
213. mál, matvælarannsóknir ríkisins
Frsm. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Hér er um eins konar þrílembing að ræða. Það eru þrjú frv. frá hæstv. heilbrrh. sem öll fjalla um svipað, að ekki sé sagt sama efni. Við í heilbr.- og trn. þessarar hv. d. höfum athugað þessi mál gaumgæfilega og eins vel og okkur var kostur gefinn til. Við kölluðum til okkar marga menn. Við kölluðum til okkar yfirdýralækni, Magnús Guðjónsson framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga, Hrafn Friðriksson forstöðumann Heilbrigðiseftirlits ríkisins, Þórhall Halldórsson, sem sér um þessi mál hjá Reykjavíkurborg, og svo fulltrúann úr heilbrrn. sem þessi frv. hefur samið, Ingimar Sigurðsson. Það er skemmst frá því að segja, að allir aðrir en höfundurinn voru óánægðir með þessi frv. og vildu ekki að þau næðu fram að ganga í óbreyttu formi.
Efni þessara frv. er fyrst og fremst að leggja á sveitarfélög þann kostnað sem ríkið hefur greitt fyrir þá starfsemi sem þessar stofnanir inna af höndum. Ástæðan fyrir því, að þessir menn voru óánægðir með þessa breytingu, var fyrst og fremst sú, að þeir óttuðust að með þessari breytingu yrði minna fjármagn til ráðstöfunar til þessara bráðnauðsynlegu starfa. Þeir óttuðust það og virtust kvíða því mjög ef sækja ætti það undir sveitarstjórnir í hverju umdæmi að fá fjármagn til ráðstöfunar til þess að gera það sem gera þarf. En engum datt í hug að halda því fram að hér væri um ónauðsynlega starfsemi að ræða, heldur þvert á móti mjög nauðsynlega sem þyrfti að efla. Auk þess eru í þessum frv. ýmis atriði til breytinga á núverandi fyrirkomulagi sem þessir menn voru ósáttir við, en ég sé ekki ástæðu til að telja það upp nema sérstaklega verði eftir því kallað.
Ég hafði samband við hæstv. heilbr.- og trmrh. um afgreiðslu þessa máls. Í samráði við hann hefur n. komist að þeirri niðurstöðu að leggja til að málið verði afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá:
„Þar eð upplýst er að nefnd sú, er skipuð var hinn 9. apríl 1978 til að endurskoða lög nr. 12 frá 1969 með hliðsjón af fenginni reynstu og til að semja drög að nýrri heilbrigðisreglugerð, mun skila niðurstöðum sínum mjög bráðlega og í fullu trausti þess, að fjárveitingavaldið sjái til þess, að þessari afar þýðingarmiklu starfsemi verði séð fyrir nauðsynlegu fjármagni á fjáraukalögum yfirstandandi árs, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Einn nm., hv. þm. Jósef H. Þorgeirsson, var fjarstaddur afgreiðslu málsins.“
Ég vil bæta því við, herra forseti, að ég treysti því og trúi að þeir tiltölulega litlu fjármunir, sem hér er um að tefla, verði látnir í té úr ríkissjóði þannig að þessi þýðingarmikla starfsemi geti a. m. k. haldið áfram með óbreyttu formi, en þyrfti þó helst að aukast. Ef ekki verður nú bætt við viðbótarfjármagni, þá liggur ljóst fyrir að Heilbrigðiseftirlit ríkisins verður að segja upp fjórum af starfsmönnum sínum, og þá er ég hræddur um að lítið sé eftir af því öryggi sem þessi stofnun á að veita okkur sem matvæla neytum í þessu landi.
Ég ætla ekki, herra forseti, að orðlengja þetta. Ég tel mig raunar hafa talað fyrir öllum málunum í senn því að afgreiðsla þeirra er öll með sama móti, þannig að ég mun ekki þurfa að taka aftur til máls nema annað tilefni gefist.