15.05.1979
Efri deild: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4782 í B-deild Alþingistíðinda. (4033)

128. mál, landmælingar

Frsm. (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Samgn. fjallaði um málið á nokkrum fundum og í ljós kom að þeir aðilar, sem sendu umsagnir um málið, og þeir aðilar, sem við töluðum við, voru mjög ósammála um frv. Því gerir n.till. sinni að málinu verði vísað til ríkisstj. til nánari athugunar.