15.05.1979
Efri deild: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4783 í B-deild Alþingistíðinda. (4044)

195. mál, hefting landbrots og varnir gegn ágangi vatna

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Þetta frv. hafði áður verið til umfjöllunar hér í hv. d., síðan það fór til Nd. og þar var gerð á því smávægileg breyting, í raun og veru formsbreyting eða orðalagsbreyting. Við í landbn. Ed. sjáum ekki ástæðu til annars en að fallast á þau rök sem liggja að þeirri breytingu, sem hefur verið gerð á frv., og leggjum því til að frv. verði samþ. í þeirri gerð sem það kemur frá Nd.