17.05.1979
Sameinað þing: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4905 í B-deild Alþingistíðinda. (4252)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (Gils Guðmundsson):

Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Umferðir verða tvær, 15 mínútur í hvorri. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Alþfl., Alþb. og Framsfl. Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., og Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v., en í síðari umferð Ellert B. Schram, 8. þm. Reykv. Fyrir Alþfl. í fyrri umferð Kjartan Jóhannsson sjútvrh., en í síðari umferð Árni Gunnarsson, 11. landsk. þm., og Eiður Guðnason, 3. þm. Vesturl. Fyrir Alþb. í fyrri umferð Ragnar Arnalds menntmrh., í síðari umferð Bjarnfríður Leósdóttir, 4. þm. Vesturl. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð Steingrímur Hermannsson dómsmrh., en í síðari umferð Tómas Árnason fjmrh.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 1. þm. Reykn., Matthías Á. Mathiesen, og talar af hálfu Sjálfstfl.