18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5017 í B-deild Alþingistíðinda. (4334)
151. mál, framhaldsskólar
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég held að æðimörg dæmi séu fyrir því að umr. haldi áfram og freistað sé að fá nægilega marga þm. til að taka þátt í atkvgr. um afbrigði. Ég trúi því ekki að menn telji sig geta stöðvað umr. gersamlega hér á þingfundum með því að flytja eina litla till. Það segir sig sjálft, að aðalatriði málsins er að afbrigði séu veitt áður en umr. lýkur. Allir viðstaddir þm. hafa heyrt þessa till., henni hefur verið lýst. Hér er um algert formsatriði að ræða og ég sé ekki að menn geti hengt hatt sinn á það að afbrigði verði tafarlaust að veita, ella verði að fresta umr. Það kynni að vera að einhverjir aðrir vildu leyfa sér að flytja hér till., gæti verið að ýmsir aðrir hefðu eitthvað annað til málanna að leggja og væri óeðlilegt að einn þm. gæti þá komið hingað upp og flutt till. og síðan sé umr. stöðvuð. Ég vil nú eindregið vænta þess, að þessi umr. haldi áfram enn um sinn, meðan athugað er hvort ekki verða nægilega margir þm. til þess að greiða atkv. um till. áður en yfir lýkur.