19.05.1979
Sameinað þing: 98. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5044 í B-deild Alþingistíðinda. (4364)
180. mál, húseignir í eigu ríkissjóðs
Fyrirspurnin er svohljóðandi:
Hvaða húseignir á ríkissjóður eða hluta í húseignum og hvar eru þessar húseignir? Til hvers eru húseignirnar nýttar? Ef um útleigu er að ræða til einstaklinga eða einkaatvinnufyrirtækja á tilteknum húseignum eða hluta af húseign, hverjar voru leigutekjur og viðhalds- og rekstrarkostnaður árið 1978 og hverjir voru leigutakar. Hvert var fasteignamat húseigna í eigu ríkissjóðs árið 1978?
Svar: Í framsöguræðu sinni með frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1978 lýsti þáverandi fjármálaráðherra því yfir, að á vegum eignadeildar fjármálaráðuneytisins myndi á næstu tveimur árum fara fram ítarleg endurmatsskráning eigna ríkisins í samræmi við fyrirmæli laga nr. 52/1966 um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Jafnframt því myndi verða unnin fullkomin skrá yfir allar eignir ríkisins, bæði efnislega muni og réttindi, og skyldi hún taka til allra ríkisaðila, bæði í A- og B-hluta ríkisreiknings. Stefnt væri að því, að verki þessu lyki eigi síðar en á árinu 1980 og mundi skráin þá birt með ríkisreikningi það ár.
Eins og að líkum lætur, er hér um afar viðamikið verkefni að ræða, enda hefur heildarskráning fasteigna ríkisins ekki verið í nægjanlega föstum skorðum. Að því er nú unnið í eignadeild fjármálaráðuneytisins og fjárlaga- og hagsýslustofnun að höfðu samráði við hvert hinna einstöku ráðuneyta um sig, en atbeina ríkisendurskoðunar og Fasteignamats ríkisins er leitað, eftir því sem þörf krefur. Allar horfur eru á, að verki þessu verði lokið á tilsettum tíma, og verður eignaskrá ríkisins þá birt ásamt upplýsingum um nýtingu þeirra.