21.05.1979
Neðri deild: 94. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5118 í B-deild Alþingistíðinda. (4486)

108. mál, aukin gæði fiskafla

Frsm. (Sighvatur Björgvinsson):

Herra forseti. Sjútvn. þessarar hv. d. hefur haft þáltill. þessa til skoðunar, en hún er komin frá Ed. og var þar breytt nokkuð. N. leggur til að till. verði samþykkt í þeirri mynd sem hún kom til hv. Nd.