21.05.1979
Neðri deild: 94. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5153 í B-deild Alþingistíðinda. (4511)

306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Þar sem ég tel, að í þessari deilu gömlu konunnar og kerfisins hafi samningaumleitanir ekki verið fullreyndar, og vegna þess að ég lít á eignarnám sem árás á eignarrétt, sér í lagi þegar leigunám fullnægir, og eignarnám er andstætt lífsskoðunum mínum og sjálfstæðismanna almennt og annarra rétt hugsandi Íslendinga, legg ég mitt létta lóð á vogarskál gömlu konunnar í baráttunni við kerfið og segi því já.