22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5219 í B-deild Alþingistíðinda. (4596)

285. mál, vegáætlun 1979-82

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Þm. Austurlandskjördæmis höfðu gert till. um skiptingu innan þess kjördæmis. Við nánari athugun sýndist okkur öllum þm. að austan rétt að gera þá breytingu sem felst í þeirri brtt. á þskj. 865 sem ég flyt ásamt Lúðvík Jósepssyni og Sverri Hermannssyni. Hér er aðeins um að ræða þrjár tilfærslur innan stofnbrautaliðsins á Austurlandi, tilfærslur eins og greinir á þessu þskj.