22.05.1979
Neðri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5272 í B-deild Alþingistíðinda. (4675)

291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Það er með þessa till. eins og þá sem var felld hér í gær, að ég get ekki greitt atkv. með lántöku að upphæð 3 milljarðar kr., sem ríkissjóður tekur ábyrgð á fyrir hönd Framleiðsluráðs landbúnaðarins, þar sem ekki liggur fyrir að Framleiðsluráð hafi getu eða tekjur til að endurgreiða þetta lán, og því segi ég nei.