22.05.1979
Neðri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5273 í B-deild Alþingistíðinda. (4679)

291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Forseti d. hefur augljóslega tekið ranga ákvörðun og misnotað aðstöðu sína sem forseti þessarar virðulegu d. Með sömu rökum og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson legg ég áherslu á að til svona misnotkunar á ekki að koma. Slíkt stenst augljóslega ekki, og forseta ber að endurskoða þau vinnubrögð sem hann hér er að reyna að viðhafa. Ég segi nei.