23.05.1979
Sameinað þing: 103. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5282 í B-deild Alþingistíðinda. (4738)
264. mál, fiskeldi að Laxalóni
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég vil undirstrika það, að tilgangur þeirrar n. eða þeirra manna, sem þetta frv. fluttu, hefur alla tíð verið sá, að Alþ. kjósi þá nefnd sem hér um teflir. Það er rétt, að þau mistök urðu á í samningu till., að það stendur „skipa“ í stað „kjósa“, en ég hygg að till. að öðru leyti beri það með sér hvað við er átt.
Ég vil svo bæta því við, að ég harma það ekkert síður en hv. 2. þm. Austurl., að þeir menn, sem nú hafa geysilegan áhuga á þessu máli, skyldu ekki fyrr nota tækifærið til þess að koma leiðbeiningum og leiðréttingum að. Þessi till. var lögð fram 24. apríl og nú er 23. maí, og það er fyrst um miðnætti í gær eða eftir það sem aths. koma fram. Það tel ég nokkuð seint vaknað á verðinum.